Öryggissérfræðingur / Safety Specialist
- Alcoa
- Iceland, Reyðarfjörður
- HSE & Training
- Bauxite
Alcoa Careers · Found 26 Nov · Checked today
ApplyMótaðu framtíðina Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina. Við leitum að öflugum og reyndum einstaklingi í starf öryggissérfræðings í umhverfis-, heilbrigðis- og öryggisteymi. Öryggissérfræðingur stuðlar að góðri öryggis- og heilbrigðis-menningu með leiðsögn, ráðgjöf, þjálfun, fræðslu, og eftirfylgni. 1. Almennt um starfið Markmið og tilgangur starfs Styðja kjarnafeli í innleiðingu öryggis- og heilsumenningar ásamt því að veita stuðning, ráðgjöf og leiðsögn er kemur að öryggismálum Verksvið eða meginverkefni starfsins · Þekkja öryggiskröfur fyrirtækisins til hlítar · Stuðla að því að öryggisstjórnkerfi fyrirtækisins (ISO 45001) sé virkt og að fyrirtækið starfi samkvæmt lögum og reglugerðum er varða öryggismál. · Leiðbeina / þjálfa starfsmenn í öryggismálum. · Ber ábyrgð á uppfærslu og viðhaldi öryggismælikvarða og virk þátttaka á daglegum DMS1 og DMS2 fundum · Þátttaka í starfi og stefnumótun umhverfis-, heilsu- og öryggisteymis. · Vera fyrirmynd í notkun á öryggisbúnaði og í fylgni öryggisreglna · Tryggja góð samskipti við öryggissérfræðinga hjá móðurfélaginu og miðlar upplýsingum er varða öryggismál frá móðurfélaginu innan Fjarðaáls. · Taka þátt í rótargreiningum atvika eftir því sem við á · Ber ábyrgð á neyðarviðbrögðum á svæði Fjarðaáls ásamt samskiptum við slökkvilið og verktaka sem sér um öryggisgæslu. · Ber ábyrgð á uppfærslu neyðarviðbragðsáætlana og að æfingar í neyðarviðbrögðum séu framkvæmdar á öllum svæðum. · Umsjón með MES atvikaskráningakerfi. Rýni UHÖ atvika og úttekta á öllum starfssvæðum. · Ýmis verkefni sem til falla og snerta öryggi starfsmanna og verktaka Ábyrgð í starfi · Hefur yfirsýn yfir öryggiskröfur Alcoa og hvort Alcoa Fjarðaál sé að standast þær kröfur · Að öryggiskröfum Alcoa sé framfylgt ásamt íslenskum og evrópskum lögum og reglugerðum er varða öryggismál · Yfirsýn og þátttaka í rótargreiningum atvika og slysa sé þess óskað 2. Grunnkröfur Menntun og/eða réttindi sem krafist er Háskólamenntun sem nýtist í starfi Reynsla sem krafist er Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á sviði öryggismála. Hæfni sem krafist er Sterk öryggisvitund, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og mannleg samskipti Samskiptafærni og samstarfsaðilar í starfinu Náin samskipti við framkvæmdastjóra og forstjóra Fjarðaáls. Góð samskipti við alla starfsmenn fyrirtækisins og verktaka. Ráðgefandi vegna þjálfunar starfsmanna og verktaka í öryggismálum. Ytri tengsl eiga við um samskipti við verktaka sem sinna öryggisgæslu á starfssvæði Fjarðaáls, verktaka sem Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið anna.kristmundsdottir@alcoa.com Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um. Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. desember Umsóknum verður svarað eftir hátíðar. ________________________________________________________________________________ We are seeking a skilled and experienced individual for the role of Safety Specialist within the Environment, Health, and Safety (EHS) team. The Safety Specialist is responsible for promoting a positive safety and health culture through guidance, consulting, training, education, and consistent follow-up. 1. General Information About the Role Purpose and Objective of the Role To support core functions in implementing a strong safety and health culture, as well as to provide support, guidance, and advice on safety-related matters. Key Responsibilities and Main Tasks Maintain thorough knowledge of the company’s safety requirements Contribute to ensuring that the company’s safety management system (ISO 45001) is effective and that operations comply with applicable laws and regulations related to safety Guide and train employees in safety practices Be responsible for updating and maintaining safety metrics and actively participate in daily DMS1 and DMS2 meetings Participate in the work and strategic planning of the Environment, Health, and Safety (EHS) team Act as a role model in the use of personal protective equipment and adherence to safety rules Ensure strong communication with safety specialists at the parent company and share relevant safety information within Alcoa Fjarðaál Participate in incident investigations and root cause analyses as required Be responsible for emergency response at the Fjarðaál site, including communication with the fire department and external security contractors Be responsible for updating emergency response plans and ensuring that drills are conducted across all areas Oversee the MES incident reporting system and review EHS incidents and audits across all operational areas Handle various tasks related to the safety of employees and contractors Responsibilities Maintain oversight of Alcoa’s safety requirements and ensure that Alcoa Fjarðaál complies with them Ensure compliance with Alco
